Sápugerð
Sápa í sinni einföldustu mynd er gerð úr fitum/olíum, vatni og basa (yfirleitt vítissóda NaOH). Þegar þessum innihaldsefnum er blandað saman hefst ferli sem kallast sápun (saponification) þar sem efnahvarf verður milli innihaldsefnanna og úr verður algjörlega nýtt efni : sápa. Enginn vítissódi er til staðar í tilbúnum sápum, því sápuuppskrifti reru yfirleitt yfirmettaðar með olíum, bæði til að tryggja að enginn vítissódi sé til staðar og einnig til að tryggja að sápur séu mildari og að auka olía sé til staðar fyrir aukna húðvernd.

Í nútíma iðnaði er iðulega bætt við ýmsum aukaefnum til að stytta framleiðsluferli, tryggja að vörurnar þoli flutning heimshornana á milli, þoli hnjask og geymslu við misjöfn skilyrði. Því eru oft og iðulega notuð rotvarnarefni, sölt og fylliefni, ásamt því að listi ilm-og litarefna er oft langur.

"Gamaldags" sápur eins og framleiddar eru hjá Sælusápum eru afturhvarf til fortíðar hvað varðar framleiðsluferli og innihald, þó nýtt sé nútímaúrval af gæða olíum til að tryggja að sápurnar séu mildar fyrir húðina.

Eftir að Sælusápur eru framleiddar er þeim gefinn 3-4 vikna tími til að þroskast, þorna, harðna og mildast, þannig að tryggt sé að viðskiptavinir fái ævinlega í hendurnar gæðavöru.

Samanburður á innihaldsefnum Sælusápa og "hefðbundinna" sápa
Mikill munur er á innihaldsefnum hefðbundinna fjöldaframleiddra sápa sem finna má í matvöruverslunum og handgerðra sápa. Hér fyrir neðan er upptalning á innihaldsefnum annarsvegar á Heiðasælu frá Sælusápum og hinsvegar ónefndri algengri sáputegund keyptri í stórmarkaði.

Heiðasæla: Ólívu- soja- og kókosolía, tólg, vatn, vítissódi, þurrkað blóðberg og blóðbergsilmolía

Hefðbundin sápa: Sodium tallowate, sodium palm kernelate, sodium palmate, aqua, parfum, sodium cloride, glycerin, prunus dulcis, sine adipe lac, pentaerythrityl tetra-di-t-butyl, hydroxyhydrocinnamate, pentasodium pentetate, citric acid, alpha-methyl ilonone, butylphenyl methylpropional, citronellol, coumarin,eugenol, hexyl cinnamal, hydroxyisohexil 3-cyclohexene,carboxaldehyde, linalool, CL 77891.