.

Sælusápur
Sápugerðin Sælusápur framleiðir og selur handgerðar íslenskar gæðasápur úr náttúrulegum hráefnum. Uppskriftirnar eru allar hannaðar af framleiðanda.
Hráefnisöflun er sem mest í heimabyggð og lögð er áhersla á að nota íslensk hráefni svo sem tólg og villtar jurtir. Einnig er notað íslenskt bygg, lífrænt ræktað hunang og mjólk úr þingeyskum kúm.

Sápuþvottur - fyrsta stigið í umhirðu húðar -
Nú á tímum er fólk í auknum mæli farið að velta fyrir sér innihaldi og gæðum þeirra neytendavara sem það notar bæði inn- og útvortis. Aukinn áhugi á lífrænni ræktun er stór hluti af þessari þróun, en einnig veltir fólk fyrir sér hvaða efni það notar á stærsta líffæri líkamans, húðina. Snyrtivörur án aukaefna og oft lífrænar, svo sem krem og áburðir ýmisskonar, hafa komið á sjónarsviðið en hingað til hefur lítið úrval verið af sápum. Þvottur með sápum er þó yfirleitt fyrsta stigið í umhirðu húðar og líkama. Sælusápur stefna að því að fylla upp í þetta skarð á markaðinum.

Fyrirtækið
Fyrirtækið Sælusápur - Lón 2 ehf var stofnað á vordögum 2008 af Guðríði Baldvinsdóttur og eiginmanni hennar Einari Ófeigi Björnssyni. Guðríður hefur stundað sápugerð til heimanota um nokkurra ára skeið og langaði að kynna handgerðar sápur fyrir fleiri en vinum og ættingjum. Hún tók því þátt í Vaxtarsprotum á vegum Impru-nýsköpunarmiðstöðvar og Framleiðnisjóðs landbúnaðarins og stofnaði Sælusápur- Lón 2 ehf í kjölfarið. Það er staðsett við heimili hennar í Lóni í Kelduhverfi.

Stofanandinn
Guðríður (Gugga ) er sauðfjárbóndi og skógfræðingur í Lóni í Kelduhverfi, starfaði um árabil hjá Norðurlandsskógum. Hún og eiginmaður hennar, Einar Ófeigur Björnsson, búa með á fimmta hundrað fjár í Lóni. Í Lóni er einnig æðarvarp, skóg- og skjólbeltarækt ásamt byggrækt í samvinnu við sveitunga.

Guðríður og Einar eiga fjögur börn, Hönnu f/d. 2001, Ásdísi f. 2004, Baldvin f. 2005 og Björn Ófeig f.2009