Tólgarilmkerti

Sælusápur kynna nú nýja framleiðslulínu ; Tólgarilmkerti

Kertið er gert úr 100% íslenskri tólg að viðbættri ilmolíu, lit og gulldufti.
Tólgin er hrein náttúruafurð, unnin úr lambamör hjá Stóruvöllum ehf í Bárðardal.
Fyrr á tímum voru flest íslensk kerti gerð úr tólg.
Kerti úr tólg brenna með hægari og daufari loga en hefðbundin kerti og endast því vel.

Kertið brennur í yfir 12 tíma. U.þ.b. 120 grömm.

Tólgin verður fljótandi og heit við brennslu og er því betra að staðsetja kertið á öruggu undirlagi og á stað þannig að ekki sé hætta á að sullist niður. Nauðsynlegt er að hreinsa kveikinn eftir hverja brennslu.

Hættið brennslu þegar ca 1cm er eftir af kertinu.


Heimaglóð; með rósailm
Vinaglóð: með lavender / vanilluilm.

Sólarglóð: með epla og appelsínuilm
Jólaglóð: með ekta gamaldags jólailm

Verð kr. 800 stk

 

 

 

 

til baka

Kertikerti